miðvikudagur, júlí 20, 2005

jæja

jæja þá er komið að enn einni tilrauninni í blog-heimum.. hinn upplýsti er kominn á ról

loksins eftir meira en mánaðar símafundi hittumst við bergur Þór Ingólfsson og ræddum um haustið, það var sem mig grunti að berginn hafði dreymt upp hugmynd sem hann bar á borð fyrir oss og um hana var skrafað, hún teiknuð og þannig. það held ég að verði bara smekklegt.

Annars er bara sól og blíða og þá er ég eins og alltaf ,inni. Ég er nefnilega þannig gerður að ég bara hreinlega hata of mikla sól, eða meira þá hata ég alltof mikinn hita. Ég vinn stundum með manni sem kallaði sólina hinu ákaflega góða nafni "gula fíflið"og í seinni tíð hef ég alltaf meira og meira farið að verða honum sammála.Ég brenn ekki í útlöndum þó að sólin sé á mér í fleiri klukkutíma en korter á Austurvelli breytir mér í fucking jarðarber.

annað sem hefur verið að snúast um í hausnum á mér er sú einkennilega "tilviljun" að eins og í amríkunni þann 11 september var breska leyniþjónustan með æfingar á viðbragsflýti við björgunaraðgerðir ef ske kynni að það yrðu sprengdar sprengjur í neðanjarðarlestarkerfi Lundúna á nákvæmlega sömu stöðum og á nákvæmlega sama tíma og sprengjurnar sprungu!!!! þaðmætti segja mér að þeir hefðu fengið bara nokkuð mikið út úr þeim æfingum ..og Tony Blair fær draumafrumvarpið sitt í gegn þ.e. frumvarp um hertar varnaraðgerðir gegn hryðjuverkamönnum!

spurning dagsins: Var Halldó Laxness fjöldamorðingi?


Ég veit það ekki